Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Þeir koma nú til Betsaídu. Þar færa menn til Jesú blindan mann og biðja að hann snerti hann.
Hann tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr þorpinu, skyrpti í augu hans, lagði hendur yfir
hann og spurði: „Sérðu nokkuð?“
Hann leit upp og mælti: „Ég sé menn, ég greini þá líkt og tré, þeir ganga.“
Þá lagði Jesús aftur hendur yfir augu hans og nú sá hann skýrt, varð albata og gat greint
allt. Jesús sendi hann síðan heim til sín og sagði: „Inn í þorpið máttu ekki fara.“

Markúsarguðspjall 8. 22-27

Hundrað orða hugleiðing

Vinir hans sögðu að fleira væri en sýndist og hann yrði að gefa meistaranum frá Nasaret tækifæri til að leiða hann frá kæfandi þröngum þorpsgötunum. Kveðja gamla þorpið og halda á nýjar slóðir með opin augu. Albata í nýjum heimi. En hann var maður raunsæis og gat ómögulega tekið því þegar einhver sagðist lyfta sér yfir veruleikann og í annan heim þar sem önnur lögmál giltu en þau hversdagslegu sem hann samþykkti með þunglyndissvip. Innst inni þráði hann að einhver kæmi til sín og leiddi sig til meistarans frá Nasaret eins og blinda manninn því honum leiddist í myrkri hversdagsins.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir