Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin.
Hundrað orða hugleiðing
Margreynd tinandi augu gamla mannsins sáu að Guð hafði holdtekið sig í umkomulitlu barninu. Hann var kominn til þeirra eins og ætíð hafði staðið til. Lausnarinn. Það voru ekki óvænt tíðindi. Nú hvíldu mjúk barnsaugu hans á heiminum. Til að fyrirgefa og lýsa öllum sem sitja örvæntingarfull í skuggasundum tilverunnar þar sem dauðinn hefur öll spjót úti í orðsins fyllstu merkingu. Augu barnsins ljómuðu af óþrjótandi miskunn Guðs. Hver getur talið geisla sólarinnar sem umfaðma okkur? Við horfum vonaríkum og björtum augum fram á friðarveg og guðsbarnið góða leiðir litla ráðvillta mannsbarnið í okkur eftir sólgulum lífsveginum á enda veraldar.