Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
„Stefið er meira en ofbeldi og græðgi sem eru á hverju strái í samfélaginu. Fyrstur á svið er garðeigandi sem skipuleggur vinnusvæðið af alúð. Reisir meira að segja varðturn í öryggisskyni. Leigutakar garðsins reynast vera jakkafataklæddir ribbaldar. Svíkja eigandann og drepa sendimenn hans. Garðeigandinn sendir þá einkason sinn til að huga að garðinum og uppskerunni. Taumlaus græðgi ribbaldanna brýst út og þeir sjá í syninum aðeins aukinn hagnað í ársreikningi sínum. Þeir drepa hann miskunnarlaust.“ Leikstjórinn horfði alvarlegur á hópinn og sagði svo: „Ég segi ykkur aðeins að sonurinn er tákn fyrir meistarann frá Nasaret. Þið kannist örugglega við hina.“