Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin.
Hundrað orða hugleiðing
Hversdagsleg gleymska. Brauðið góða. Gleymskan verður meistaranum tilefni til að minna vini sína á að varast annarlegar kenningar en þeir býsnast yfir brauðleysinu. Ögn fýkur í meistarann; hann kallar þá trúlitla því að þeir hafa gleymt kraftaverkum hans. Gleymt er þegar gleypt er. Þeir þurfa engu að kvíða ef þeir trúa. Og hann endurtekur viðvörun sína. Varist hugsanir sem smjúga inn í frjósaman huga ykkar og fylla samfélagið sýndarmennsku og efnishyggju. Þá skildu þeir hann loksins og síðar ræðuna hans mögnuðu yfir trúarstéttinni sem staðföst kirkja getur lært af: „Vei, þér líkist hvítum, kölkuðum gröfum…“ Mundu: Einn er meistarinn. Kristur.