Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Næsta dag hugðist Jesús fara til Galíleu. Hann hitti þá Filippus og sagði við hann:
„Fylg þú mér!“
Filippus var frá Betsaídu, sömu borg og Andrés og Pétur. Filippus fann Natanael og sagði við hann: „Við höfum fundið þann sem Móse skrifar um í lögmálinu og einnig spámennirnir, Jesú frá Nasaret, son Jósefs.“
Natanael sagði: „Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?“
Filippus svaraði: „Kom þú og sjá.“
Jesús sá Natanael koma til sín og sagði við hann:
„Hér er sannur Ísraelíti sem engin svik eru í.“
Natanael spyr: „Hvaðan þekkir þú mig?“
Jesús svarar: „Ég sá þig undir fíkjutrénu áður en Filippus kallaði á þig.“
Þá segir Natanael: „Rabbí, þú ert sonur Guðs, þú ert konungur Ísraels.“
Jesús spyr hann: „Trúir þú af því að ég sagði við þig: Ég sá þig undir fíkjutrénu? Þú munt sjá það sem þessu er meira.“ Og hann segir við hann: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn.“

Jóhannesarguðspjall 1.43-51

Hundrað orða hugleiðing

Hafði hún ekki alltaf sagt að þetta væri spurning um samband milli manneskjunnar og skaparans? Sambandið gat auðvitað verið misjafnt og sumir voru utan hins andlega þjónustusvæðis. En sagði ekki meistarinn að himinninn yrði opinn og það væri stríður straumur engla á ferð upp og niður? Hvað þýddi það annað en að meistarinn hefði rutt öllum vegatálmum frá og nú væri greið leið milli himins og jarðar, já meira að segja stofnæð! Var ekki alltaf verið að krefjast bættra andlegra samgangna? Nú voru þær komnar. En það þyrfti náttúrlega að koma og sjá meistarann. Fylgja honum á nýlögðum vegi lífsins.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir